Krummi svaf í klettagjá
kaldri vetrarnóttu á,
;;verður margt að meini;;
Fyrr en dagur fagur rann
freðið nefið dregur hann
;;undan stórum steini;;
Allt er frosið úti gor,
ekkert fæst við ströndu mor
;;svengd er metti mína;;
Ef að húsum heim ég fer
heimafrakkur bannar mér
;;seppi úr sorpi að tína;;
Öll er þakin ísi jörð,
ekki séð á holtabörð
;;fleygir fuglar geta;;
En á leiti út um mó
auða hvergi lítur tó;
;;hvað á hrafn að eta?;;
Krummi svaf .......
Artist: Jimmy Eat World
Artist: Death Grips
Artist: Kinks